Matís, í samstarfi við Íslandsbleikju, Háskólann á Akureyri, Keldur og spænska bóluefnisframleiðandann Hipra vinna að þróun sértæks bóluefnis fyrir bleikju.
Frá þessu segir á vef Matís.
Sá sjúkdómur sem valdið hefur mestum afföllum í bleikjueldi undanfarin ár er kýlaveikibróðir. Bólusetning gegn sjúkdómnum, sem byggir á bóluefni þróað til notkunar í laxi, hefur ekki reynst nógu öflug. Sjúkdómurinn veldur því umfangsmiklum afföllum og tekjutapi í greininni. Nú hafa þátttakendur verkefnisins, sem styrkt er af AVS rannsóknasjóðnum, hafið þróun á sértæku bóluefni gegn kýlaveikibróður fyrir bleikju með það að markmiði að koma á markað öflugu bóluefni sem nýtist í bleikjueldi.
Verkefninu er stýrt af Íslandsbleikju og munu niðurstöður verkefnisins liggja fyrir seinni hluta árs 2019.