Þórunn Sveinsdóttir VE-401 er togari sem er í eigu útgerðarinnar Ós ehf., dótturfélags Vinnslustöðvarinnar. Vinnslustöðin hf. keypti allt hlutafé í félaginu á árinu 2023 ásamt hlutafé í Leo Seafood, fiskvinnslu sem var að meirihluta í eigu sömu aðila. Frá þessu er greint á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar.
Stjórnendur Vinnslustöðvarinnar hafa nú ákveðið að setja Þórunni Sveinsdóttur VE á söluskrá og var áhöfn skipsins tilkynnt það á fundi með framkvæmdastjóra og sviðsstjóra í gær. Rétt er að geta þess að engum starfsmanni var sagt upp störfum. Þessi ákvörðun er erfið en því miður nauðsynleg miðað við þær aðstæður sem uppi eru hjá félaginu og þeirrar óvissu sem ríkir um m.a. hækkun veiðigjalda.
Á aðalfundi Vinnslustöðvarinnarí vor kom meðal annars fram að félagið hafi verið rekið með 500 milljón króna tapi árið 2024. Skuldir og skuldbindingar félagsins námu 44 milljörðum króna.
Í umsögn sem liggur nú frammi hjá atvinnuveganefnd Alþingis er farið rækilega yfir áhrif veiðigjalda á Vinnslustöðina. Þar er meðal annars farið yfir að afleiðingar fyrir Vinnslustöðina verði að draga þurfi úr fjárfestingum, en félagið ákvað að hætta við bráðnauðsynlega endurnýjun botnfiskflota sínum. Elstu skipin þar eru Kap VE frá árinu 1967 og Drangavík VE frá árinu 1992. Selja þurfi eignir til að létta á skuldum, eins og í þessu tilfelli sem nú er verið að kynna. Fara þurfi í erfiðar hagræðingaraðgerðir, sem verið er að undirbúa. Lækka þurfi arðgreiðslur, en félagið ákvað að greiða ekki út arð í ár.
„Til að setja hlutina í samhengi þá má gera ráð fyrir að hækkun veiðigjalda áranna 2023 og 2024 hefði verið 840 milljónir króna (meðaltal áranna). Það jafngildir því að ríkið er að taka til sín getu til að greiða af 21 milljarða skuldum félagsins.
Áætluð heildar veiðigjöld félagsins verða því 1.250 milljónir króna og jafngildir þá afborgunum lána, án vaxta, að jafnvirði 35 milljörðum króna.
Þá kom einnig fram í umsögn félagsins til atvinnuveganefndar að bakreikningur tvöföldunar veiðigjalda sýndi að útgerðarhluti Vinnslustöðvarinnar hefði verið rekinn með tapi árin 2013-2024. Það þýddi að engin geta væri hjá félaginu til að endurnýja skip félagsins sem er auðvitað ekki sjálfbært.“