Aflaverðmæti í júlí, við fyrstu sölu, varð rúmlega 12,8 milljarðar sem er um milljarði meira en í júlí 2021, þegar aflaverðmætið var 11,8 milljarðar.

Hagstofan greinir frá þessu.

Þorskurinn skilaði um 34% af aflaverðmætinu þennan mánuð en makríllinn 29%.

Á tólf mánaða tímabilinu frá ágúst 2021 til júlí 2022 var heildaraflaverðmæti tæpir 186 milljarðar króna, sem er 31 milljarði króna meira en á sama tímabili frá sama tímabili 2020-2021.