Sjávarútvegsráðherra hefur heimilað að skipta út þorskkvóta úr krókaaflamarki fyrir ýsukvóta  í aflamarkskerfinu.

Þorskurinn slæst með breytingunni í félag með ufsanum um tegundir sem heimilt verður að flytja aflamark frá bátum í krókaaflamarkskerfi til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki. Flutningur er háður því að um jöfn skipti í þorskígildum sé að ræða.

Ígildastuðull fyrir ýsu er 1,30 og ufsa 0,81.

Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda. Þar er þess jafnframt getið

Ráðuneytið beindi fyrirspurn til LS um framangreint málefni þegar aðalfundur stóð yfir.  Eftir stutta umræðu var óskað eftir afstöðu fundarins.  Algjör einhugur var um að hafna hugmynd ráðuneytisins.

Afstaða Landssamband smábátaeigenda var því skýr hvað þetta málefni varðar, segir á vef LS.