Heldur treg veiði hefur verið á Austfjarðamiðum hjá togurunum en nú er að rætast úr því. Þar hefur orðið vart við makríl og þorskurinn er mættur þar í makrílveislu, að því er Steinþór Háldánarson skipstjóri á Bjarti NK segir í samtali við vef Síldarvinnslunnar.

Ísfisktogarinn Bjartur NK kom til löndunar í Neskaupstað í gær með 60 tonna afla eftir að hafa verið þrjá daga á veiðum eystra og var þá Steinþór tekinn tali.

„Það er að rætast úr veiðinni hér eystra en aflinn í þessari veiðiferð var að uppistöðu til þorskur og karfi. Við vorum að reyna við ufsa eins og nánast allur íslenski togaraflotinn en það reyndist vera lítið af honum. Að undanförnu hefur verið tregt hér eystra og því höfum við veitt á Vestfjarðamiðum síðustu þrjár vikur eða svo. En nú er að rætast úr þessu hérna fyrir austan; það hefur orðið vart við makríl og þá er sá guli fljótur að láta sjá sig. Hann er mættur í makrílveislu,“ sagði Steinþór.

„Við erum að njóta síðustu túranna á Bjarti en eins og kunnugt er hefur hann verið seldur til Írans og verður afhentur nýjum eigendum í ágúst. Bjartur er mikið gæðaskip og hefur staðið sig einstaklega vel frá því að Síldarvinnslan hóf að gera hann út árið 1973. Það eiga margir ljúfar og góðar minningar af verunni á Bjarti en nú er hann orðinn gamall blessaður og hans bíða ný verkefni á framandi slóðum,“ sagði Steinþór að lokum.