Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 7. janúar 2013 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum þorski um 2% og hækka viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 2%.
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila.
Breytingin tekur gildi 7. janúar 2013.
Þetta kemur fram á vef Verðlagsstofu skiptaverðs.