Útflutningsverðmæti (FOB) fiskafurða árið 2013 var rúmlega 272 milljarðar íslenskra króna. Þorskafurðir gáfu mestu verðmætin árið 2013 eða 32% af heildarverðmæti sjávarafurða.
Uppsjávartegundirnar loðna, makríll og síld voru einnig talsvert verðmætar og voru samanlögð verðmæti þeirra 29% af heildarverðmæti fiskafurða.
Þorskur, makríll, loðna og síld standa því saman að um 61% af heildar útflutningsverðmætum sjávarafurða. Það eru því þessar fjórar tegundir sem skapa mestu tekjurnar fyrir íslensk þjóðfélag.
Greint er frá þessu á vef LÍÚ .