Á síðasta ári fór þorskafli á Íslandsmiðum í fyrsta skiptið á þessari öld yfir 250 þúsund tonn, að því er fram kemur á vef Landssambands smábátaeigenda .
Alls veiddust 250.368 tonn af þorski á síðasta ári nánar tiltekið. Liðin eru 16 ár frá því meira veiddist, en 1999 skilaði 259.209 tonnum. Á vef LS er birt graf sem sýnir þróun þorskveiða síðastliðna tvo áratugi. Meðaltalið er 207.555 tonn, minnst veiddist árið 2008 aðeins 144.332 tonn, en mestur var aflinn 1999.