Þorbjörn hf. í Grindavík hefur gert samning við Skipasmíðastöðina Armon í Gijón á Spáni um smíði á 58 metra löngum og 13,6 metra breiðum ísfisktogara. Ráðgert er að smíðinni ljúki á fyrri hluta ársins 2024.

Frá þessu segir fyrirtækið í frétt á Facebook.

Þar segir að um fyrstu nýsmíði fyrirtækisins er að ræða síðan 1967, en á undanförnum 50 árum hafa fjölmörg fiskiskip komið við sögu félagsins ýmist við sameiningar við önnur útgerðarfyrirtæki eða við bein kaup. Fyrirtækið hefur staðið fyrir meiriháttar endurnýjun og breytingum á eldri skipum og breytt þeim úr t.d. uppsjávarveiðiskipum yfir í línuskip og ísfisktogurum yfir í frystiskip.

„Skipið er hannað af Sævari Birgissyni skipatæknifræðingi hjá Verkfræðistofunni Skipasýn ehf. í nánu samstarfi við starfsmenn Þorbjarnar hf og liðsinnti hann starfsmönnum Þorbjarnar hf við samningsgerðina á Spáni. Við hönnun skipsins hefur verið lögð rík áhersla á að draga úr orkunotkun og þar með að umhverfisáhrif þess verði sem minnst. Aðalvél skipsins sem verður um 2400 KW. mun knýja skrúfu sem verður 5 metrar í þvermál. Stærð og snúningshraði skrúfunnar verður lægri en áður hefur þekkst í eldri fiskiskipum af sambærilegri stærð. Skipið verður þess vegna sérlega sparneytið og því í hópi sparneytnustu skipa í þessum flokki. Þá verður skipið búið til veiða með tveimur botnvörpum samtímis og togvindurnar knúnar rafmagni,“ segir í fréttinni.