Frystitogarinn Barði NK kom til Neskaupstaðar í gær að aflokinni hálfsmánaðar veiðiferð. Aflinn var um 180 tonn upp úr sjó, uppistaðan ýsa. Verðmæti aflans er um 90 milljónir króna.

Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar að fiskað hafi verið á Austfjarðamiðum allan túrinn og hann hafi einkennst af þokkalegu ýsukroppi. Komið var í land sólarhring áður en áformað var vegna veðurs og í rokinu í gær lá Barði úti á Norðfirði þar sem meðal annars var unnið við að þrífa skipið.

Barði heldur í síðustu veiðiferð fyrir jól nk. sunnudag.