Ísfisktogarinn Bergey VE hefur fiskað vel að undanförnu. Farnar hafa verið þrjár veiðiferðir á skömmum tíma og að þeim loknum hefur ávallt verið landað fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum. Skipstjóri í tveimur fyrstu ferðunum var Ragnar Waage Pálmason og var hann ánægður með aflabrögðin sem hann lýsti í samtali við tíðindamann Síldarvinnslunnar.

„Það var mjög góð veiði í fyrri túrnum og enn betri í þeim síðari. Það var veitt út af Garðskaga og aflinn var mest ýsa. Við vorum í rúma þrjátíu tíma á miðunum í hvorum túr. Eftir fyrri túrinn var landað á sunnudag fyrir rúmri viku og síðan aftur á þriðjudag. Þetta voru hörkutúrar,” sagði Ragnar Waage.

Ýsa og þykkvalúra með

Bergey landaði að afloknum þriðja túrnum í gær og var Jón Valgeirsson þá skipstjóri. Jón var ekki síður sæll með aflabrögðin en Ragnar.

„Við byrjuðum út af Garðskaga og þar var fínasta veiði þó ekki væri um að ræða jafn mikið blindmok og í túrunum tveimur á undan. Þarna fékkst ýsa og dálítil þykkvalúra með. Ýsan liggur þarna í síldarhrognum og það virðist vera nóg af henni. Við enduðum túrinn á því að bruna á Víkina og þar var fyllt með þorski,” sagði Jón.

Nú er komið þjóðhátíðarstopp hjá Bergey og mun áhöfnin örugglega skemmta sér vel um verslunarmannahelgina.