„Að taka heilan túr í svona góðum fiski er náttúrlega alveg dásamlegt. Þetta var svakalega fínn fiskur,“ segir Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni GK sem kom til hafnar í Grindavík með fullfermi á sunnudag eftir sex daga túr, degi á undan áætlun.
Aflinn var 430 kör eða um 135 tonn og fékkst hann í fjórum lögnum sem gáfu allt frá tæpum 100 körum og upp í rúm 120 kör mest. Helmingur af aflanum var þorskur sem Jónas segir hafa verið mjög vænan, meðalvigtin hafi verið um átta kíló. „Ýsan var líka væn, meðalvigtin á henni var um þrjú kíló,“ segir hann. Álíka mikið hafi fengist af ýsu og löngu sem einnig hafi verið stór.
Mokveiði víða
Að sögn Jónasar var túrinn líka góður af því leyti að aflinn hafi fengist í aðeins fjórum lögnum sem fyrr segir; tveimur á Kötlugrunni og síðan tveimur í Meðallandsbugt. „Þetta var í allt um sólarhrings stím en við vorum samt degi fyrr í land en venjulega,“ segir hann.
Um ganginn undanfarna mánuði segir Jónas haustið hafa gengið vel og líka það sem af sé þessu ári. „Það er mokveiði víða og mjög góð veiði hjá bátunum almennt. Við þurfum náttúrlega að takmarka þorskinn eins og flestir aðrir og vera í auka tegundunum líka. Þeir eiga nógan kvóta í þeim og það þarf að veiða þær líka; ýsuna og lönguna.“
Fullur dampur í Grindavík
Landað hefur verið úr Páli Jónssyni í Grindavík síðan um áramót. „Á haustin er léleg veiði fyrir sunnan og þá erum við fyrir norðan og austan og vestan. Þá höfum við landað í Grundarfirði, á Skagaströnd og Djúpavogi,“ segir Jónas.
Hann undirstrikar að þessum fiski sé og hafi hins vegar nánast öllum verið ekið til vinnslu hjá Vísi í Grindavík nema rétt þegar bærinn hafi verið lokaður í kringum eldgosin.
„Það er unnið á fullum dampi þar í öllum húsum hjá Vísi, bæði í salthúsinu og frystihúsinu. Það er verið að vinna allt upp í 100 tonn á dag í frystihúsinu. Þannig að menn bera sig bara vel þar núna. En þessi órói er enn í gangi með landrisi og enginn veit hvernig það endar,“ segir skipstjórinn.
Dróni birtist óvænt
Þegar Páll Jónsson átti um þrjár sjómílur ófarnar að landi á sunnudaginn tók áhöfnin öryggisæfingu þar sem æft var að setja léttabátinn á flot.
„Við vorum að taka æfingu en þá allt í einu var bara dróni fyrir ofan hausinn á okkur,“ segir Jónas og vísar þá í að myndasmiðurinn Jón Steinar Sæmundsson hafi sent sérlega langdrægan dróna út á móti skipinu. Árangur þess má sjá hér að ofan og eins á forsíðu Fiskifrétta í dag.
Jónas segir áhöfnina á Páli Jónssyni oft taka öryggisæfingar. „Við þurfum að taka að minnsta kosti tvær verkæfingar í mánuði. Þess á milli tökum við öræfingar þar sem förum yfir búnaðinn sjálfir og mannskapurinn líka.“
Æfingar á frívaktinni
Áhöfnin á Páli Jónssyni notar Öldu, sem er öryggisstjórnunarkerfi fyrir fiskiskip, og voru fyrstir til þess. „Þeir senda okkur einfaldlega fyrirmæli um hvað við eigum að taka næst,“ segir Jónas. Til dæmis séu reykköfunartæki prófuð og æft að maður fari fyrir borð. „Við förum eftir því sem sett er upp og svo æfum við líka annað inn á milli.“
Jónas segir alla um borð mjög sátta við þessar tíðu æfingar. „Og ef einhver er á frívakt tekur hann kannski slökkvitækin og flotbúningana á öræfingu,“ segir hann. Allt sé í toppstandi.
„Allur búnaður er í afar góðu lagi enda er alltaf mikið farið yfir þetta allt, það er allur öryggisbúnaður til fyrirmyndar.“