Aflaheimildir 14 sjávarútvegsfyrirtækja í Vestmannaeyjum verða skertar um 15.500 þorskígildistonn á fimmtán árum, þar af um 7.500 þorsklgildistonn strax á fyrsta árinu, ef Alþingi samþykkir frumvörp ríkisstjórnarinnar um afnám núverandi skipulags í sjávarútvegi.
Þetta er niðurstaða útreikninga sem miðast við meðaltal aflaheimilda þessara fyrirtækja síðustu tvo áratugina. Skerðingin svarar til 150-160 starfa við veiðar og vinnslu í Eyjum. Þetta jafngildir því að landvinnsla Vinnslustöðvarinnar, stærsta fiskvinnslufyrirtækis Vestmannaeyja, verði lögð af eða flutt frá Eyjum.
Þessar upplýsingar kom fram á blaðamannafundi sem Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Austfjarða efndu til í Reykjavík í dag.
„Þetta er árás á Vestmannaeyjar!" sagði Stefán Friðriksson formaður Útvegsbændafélags Vestmannaeyja á fundinum. „Kjarni málsins er sá að gera á aflaheimildir fyrirtækja í Vestmannaeyjum upptækar sem nemur 7-9 milljörðum króna á ári."