Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í heimahöfn í Vestmannaeyjum í gær. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem spjallað er við skipstjórana tvo.

„Þetta var fínasti túr og all víða veitt. Við byrjuðum á að taka þrjú hol á Glettinganesflakinu eftir löndun í Neskaupstað en síðan var keyrt suður á Ingólfshöfða og þar tekin tvö hol,“ segir Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergi á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Eftir þetta segir Ragnar að haldið hafi verð á Öræfagrunn og skimað eftir ýsu. „Loks var skipið fyllt með tveimur holum á Ingólfshöfða. Þetta er fínasti fiskur sem við fengum og ekki er hægt að kvarta yfir veðrinu.“

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir veiðiferðina hafa verið örstutta. „Við fórum út til að leita að öðru en þorski og ýsu. Það er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess. Túrinn var örstuttur og aflinn var ufsi og karfi ásamt fleiri tegundum. Við vorum innan við sólarhring að veiðum að þessu sinni,“ segir Egill Guðni á svn.is.