Baldvin Þorsteinsson hefur tekið við sem forstjóri Samherja hf. Þorsteinn Már Baldvinsson, faðir Baldvins, hefur látið af störfum eftir að hafa gegnt starfi forstjóra í 42 ár eða frá stofnun félagsins árið 1983.

Frá þessu greinir í tilkynningu frá Samherja þar sem haft er eftir Baldvini að hann sé þakklátur fyrir það traust sem sér sé sýnt með ráðningunni.
„Eins og margir Akureyringar byrjaði ég ungur að árum að vinna hjá Samherja og hef gegnt margvíslegum störfum hjá félaginu í gegnum árin. Ég hef því kynnst félaginu, innviðum þess og starfsfólkinu smám saman og nú síðustu tvö árin sem stjórnarformaður Samherja. Þá hefur náið samstarf okkar feðga verið mikilvægt og gefandi. Ég bind vonir við að þessi reynsla og ólík störf í atvinnulífinu á undanförnum árum verði gott veganesti fyrir mig í starfi forstjóra. Hjá fyrirtækinu er mikill mannauður, það skiptir auðvitað mestu máli,“ segir Baldvin í tilkynningu Samherja.
„Hjartað í rekstrinum er að sjálfsögðu starfsfólkið“
Þá segir Baldvin meðal annars að áframhaldandi árangur félagsins muni byggjast á öflugri liðsheild.
„Hjartað í rekstrinum er að sjálfsögðu starfsfólkið. Árangurinn byggist fyrst og fremst á þekkingu og metnaði þess. Ég hlakka til að vinna við hlið öflugrar áhafnar, þar sem valinn maður er í hverju rúmi og margar áskoranir í farvatninu. Við keppum á alþjóðlegum mörkuðum og íslenskur sjávarútvegur hefur alla burði til að vera áfram leiðandi á heimsvísu að því gefnu að íslensk stjórnvöld búi greininni gott og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi,“ segir Baldvin á samherji.is.
Var forstjóri Jarðborana frá 2013 til 2016
Fram kemur að Baldvin sem fæddur er 1983 sé með Bsc gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hafi hafið' störf hjá Samherja hf. eftir útskrift frá HÍ árið 2007.
„Baldvin var forstjóri Jarðborana hf. frá 2013 til 2016 og sneri síðan aftur til Samherja þar sem hann var framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar frá 2016 til 2019. Þá flutti hann til Hollands þar sem hann stýrði stofnun Alda Seafood og gegndi stöðu framkvæmdastjóra þess félags til ársins 2022 þegar hann flutti ásamt fjölskyldu sinni til Noregs til að stýra skrifstofu Alda Seafood í Osló,“ segir á samherji.is þar sem ítarlegar er fjallað um málið.