Heimastjórnar Patreksfjarðar segir brýnt að bæjarstjórn Vesturbyggðar tryggi að framkvæmdum við stórskipakant við Patrekshöfn seinki ekki frekar.

Þetta kemur fram í fundagerð bæjarstjórnarinnar sem tók bókun heimastjórnarinnar fyrir og sagðist taka heilshugar undir með heimamönnum á Patreksfirði. Samkvæmt tillögu að samgönguáætlun árin 2024-2028 hafi verið áformað að framkvæmdir við stórskipakant við Patrekshöfn myndu hefjast á árinu 2025 og framkvæmdum að vera lokið á árinu 2027.

Erfitt fyrir stærri skip vegna þrengsla

„Undirbúningur fyrir framkvæmdir við stórskipakant við Patrekshöfn hafa staðið yfir á síðustu árum, meðal annars með öldustraumsrannsóknum sem hafa verið fjármagnaðar með framlögum úr samgönguáætlun,“ segir í bókun heimastjórnarinnar. Stórskipakantur við Patrekshöfn sé grundvöllur þess að unnt verði til framtíðar að efla starfsemi hafnarinnar, auka umsvif, bæta þjónustu og styrkja tekjugrundvöll.

„Einnig er framkvæmd við stórskipakant mikilvægur liður í því að tryggja viðunandi hafnaraðstöðu til að taka á móti þeim fjölmörgu skemmtiferðaskipum sem leggja leið sína á sunnanverða Vestfirði til að bera svæðið og náttúru þess augum. Þá er staðsetning og lega Patrekshafnar þannig að stórskipakantur mun skapa mikilvæg tækifæri til strandflutninga af sunnanverðum Vestfjörðum sem og móttöku stærri fiskiskipa sem stunda veiðar fyrir utan Vestfirði, en erfitt hefur reynst fyrir stærri skip að leggjast að bryggju vegna þrengsla í skurði hafnarinnar,“ segir í bókuninni.

Mörg dýrmæt tækifæri kunni að tapast

Þá segir að Patrekshöfn sé hluti af grunnneti samgangna þar sem umsvif hafnarinnar hafi aukist verulega á síðustu árum. Því sé mikilvægt að framkvæmdir við stórskipakant njóti algjörs forgangs þegar komi að hafnarframkvæmdum innan sveitarfélagsins. Heimastjórnin hvetji bæjarstjórnina til að beita sér fyrir því að tryggð verði framlög í hafnarsjóði Vesturbyggðar og í samgönguáætlun komandi ára svo tryggja megi uppbyggingu á stórskipakanti við Patrekshöfn.

„Sú seinkun sem þegar hefur orðið á að framkvæmdir við stórskipakant hefjist hefur í för með sér að mörg og dýrmæt tækifæri til frekari atvinnusköpunar og innviðauppbyggingar í sveitarfélaginu kunna að tapast,“ segir heimastjórn Patreksfjarðar sem kveðst því leggja ríka áherslu á að ekki verði frekari seinkun á því að framkvæmdir við stórskipakant við Patrekshöfn hefjist og að í samgönguáætlun sem lögð verður fram í haust verði tryggt fjármagn til framkvæmda strax á næsta ári.