Þrjú af stærstu sjávarút­vegs­félögum landsins sem skráð eru í Kauphöll Íslands hafa tapað sam­tals tæp­lega 49 milljörðum króna í markaðsvirði frá áramótum. Viðskiptablaðið segir frá þessu.

Um er að ræða Brim, Ís­félagið og Síldar­vinnsluna sem öll hafa séð hluta­bréfa­verð sitt lækka um­tals­vert það sem af er ári.

Sé tekið mið af fjölda hluta og hluta­bréfa­verði í árs­byrjun og gengi félaganna nú hefur markaðsvirði Brims lækkað um rúm­lega 14,5 milljarða eða um 10,3%.

Ís­félagið hefur lækkað enn meira hlut­falls­lega en huta­bréfa­verð félagsins hefur farið úr 150,2 krónum í 132 krónur á hlut frá áramótum og markaðsvirði þess lækkað um nærri 14,9 milljarða sem jafn­gildir 12,1% lækkun.

Síldar­vinnslan hefur lækkað um 11,5% frá áramótum og tapað um 19,6 milljörðum að markaðsvirði.

Sam­eigin­leg lækkun er því um 49 milljarðar króna en loðnu­brestur, yfir­vofandi tvöföldun veiði­gjalds ásamt öðrum ytri þáttum hafa skapað aukna óvissu í kringum greinina upp á síðkastið.