Fiskistofa hefur átt fullt í fangi með að úthluta veiðiheimildum nýs fiskveiðiárs. Venjulega hefur úthlutunin verið birt strax 1. september, daginn sem nýtt ár byrjar. Viku síðar bólar þó ekkert á tölunum, en samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu ættu þær að fara í loftið á vef stofnunarinnar á allra næstu dögum.

Ýmislegt mun hafa orðið til þess að tefja fyrir þetta árið. Fyrir það fyrsta birti ráðuneytið reglugerðir um fiskveiðar ársins óvenju seint.

Annað sem flækst hefur fyrir er að úthlutun á Breiðafjarðaskel, hörpudiski sumsé, er með öðru móti þetta árið en verið hefur. Það stafar af því að Hafrannsóknastofnun lagði til að úthlutuninni yrði nú skipt niður á tvö svæði, Hvammsfjörð og Breiðasund. Töluvert flókið hefur reynst fyrir starfsmenn Fiskistofu að reikna út heimildirnar út frá þessari breyttu svæðaskiptingu.

Hið árlega Kvótablað Fiskifrétta hefur verið unnið upp úr tölunum frá Fiskistofu, og yfirleitt hefur Kvótablaðið komið út í annarri viku í september vegna þess að fyrstu tölurnar hefur stundum þurft að leiðrétta smávegis af ýmsum ástæðum.

Vonir standa til þess að Kvótablaðið komi út í næstu viku, en það er háð því að Fiskistofa hafi náð að greiða úr flækjunni.