Það sem af er vertíð eru komin á land 1.629 tonn af grásleppu. Þetta er töluvert minni afli en á sama tíma á síðustu vertíð en þá höfðu 3.219 tonnum verið landað. Grásleppuaflinn er því tæplega helmingi minni á þessari vertíð miðað við vertíðina í fyrra. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu .
Alls hafa 157 bátar sótt um leyfi til grásleppuveiða á þessari vertíð. Fjöldi útgefinna leyfa er æði misjafn milli svæða. Aðeins fjögur leyfi hafa verið gefin út fyrir svæði G sem er svæðið frá Hvítingum vestur til Garðskagavita en 77 leyfi fyrir svæði E sem nær frá Skagatá austur að Fonti á Langanesi.
Það sem af er vertíð er Finni NS aflahæstur með 39,2 tonn en hann er gerður út á svæði F sem er Norðausturland. Næstur í röðinni er Glettingur NS með 34,2 tonn.