Systurskipin Björgúlfur EA 312 og Björg EA 7 hafa verið máluð hjá Slippnum Akureyri og eru eins og ný. Frá þessu segir á vefsíðu Samherja.
Björgúlfur og Björg eru tvö af fjórum systurskipum sem smíðuð voru hjá Cemre skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Björgúlfur kom nýr til Akureyrar í júní 2017 og Björg í lok október sama ár. Hin skipin eru Kaldbakur EA 1 og Drangey SK 2.
Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, segir á samherja.is að tími hafi verið kominn á hreinsun skrokka skipanna.
Vel byggð skip
„Þegar skipin voru byggð var vandað til allra verka og málningin hefur því enst mjög vel, aðeins hefur þurft að lagfæra skemmdir sem alltaf verða á skrokkum skipa. Núna létum við sem sagt háþrýstiþvo skrokka skipanna og mála. Þetta er nauðsynlegt að gera reglulega, fjarlægja gróður og þvo allt salt í burtu áður en málað er,“er haft eftir Kristjáni.
Að sögn Kristjáns stuðlar góð og markviss hreinsun að betri orkunýtingu og sparnaði í olíunotkun. Þannig séu hvatarnir margir í þessum efnum.
Einnig var unnið að ýmsum lagfæringum um borð.
„Það eru margir slitfletir um borð í fiskiskipum sem stöðugt þarf að fylgjast með og lagfæra,“ segir Krisján. Meðal annars hafi stýrisbúnaður verið yfirfarinn og uppfærður í öðru skipanna.
Tími gafst í sumarleyfum
„Þessi systurskip hafa reynst afskaplega vel en auðvitað þarf stöðugt að endurnýja ýmsa hluti, það er bara hefðbundið og sjálfsagt viðhald. Í tengslum við sumarleyfi starfsfólks vinnsluhúsanna á Dalvík og Akureyri er sjósóknin ekki eins stíf og tími gefst því til viðhalds og endurbóta,“ heldur Kristján áram og bætir við að skertar veiðiheimildir hafi líka sitt að segja.
„Við erum afskaplega ánægð með vinnu Slippsins, skipin eru eins og ný, auk þess sem allar tímaáætlanir stóðust,“ segir Kristjám. Innan raða Slippsins sé mikil þekking og reynsla í háþrýstiþvotti og málningu.
„Ég held að áhugafólk um skip taki yfirleitt eftir nýmáluðum skipum, mér sýnist að minnsta kosti margir taki myndir af systurskipunum eftir að þau voru máluð svona vel og það er bara skemmtilegt,“ segir Kristján Vilhelmsson á samherji.is. Þar má sjá fleiri myndir af systurskipununum nýmáluðu.