Stjórn Fiskeldisjóðs hefur úthlutað öðru sinni styrkjum til eflingar innviða og atvinnulífs í sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi er stundað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Að þessu sinni var úthlutað styrkjum til níu verkefna í sex sveitarfélögum, samtals 185 milljónum króna. Úthlutun á fyrra ári nam 105 milljónum króna.

Eftirfarandi níu verkefni frá sex sveitarfélögum hlutu styrk:

  • Vatnsveita í Bolungarvík, bygging miðlunartanks, Bolungarvíkurkaupstaður, 33,4 milljónir.
  • Endurnýjun vatnslagna í Staðardal, Ísafjarðarbær (framhaldsverkefni), 33,4 milljónir.
  • Nemendagarðar Háskólaseturs, frágangur lóðar, Ísafjarðarbær, 16 milljónir.
  • Fráveituframkvæmdir í Djúpavogi (framhaldsverkefni), Múlaþing, 32,4 milljónir.
  • Smitvarnir í Súðavíkurhöfn, Súðavíkurhreppur, 4,1 milljón.
  • Uppbygging á hafnarsvæði, Tálknafjarðarhreppur, 28,8 milljónir.
  • Áhaldahús og slökkvistöð á Bíldudal, Vesturbyggð, 22,6 milljónir.
  • Vatnsöryggi í Vesturbyggð, (framhaldsverkefni), Vesturbyggð, 4,1 milljón.
  • Öruggar gönguleiðir, gerð gangstétta, Patreksfirði, Vesturbyggð, 10,3 milljónir.

Þrjú af ofangreindum verkefnum fengu styrk við úthlutun 2021.

Í frétt stjórnvalda segir að samþykktar umsóknir námu samtals um 299,5 milljónum króna en þar sem ráðstöfunarfé sjóðsins er lægra en sú fjárhæð voru styrkfjárhæðir skertar hlutfallslega í samræmi við forgangsröðun stjórnar.

„Stjórnin metur það svo að verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni falli öll vel að áherslum sjóðsins og séu til þess fallin að styrkja innviði sveitarfélaga og atvinnulíf á þeim svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað.“

Frá stofnun sjóðsins 2021 hafa tæplega 300 milljónir króna runnið til fjölbreyttra verkefna.