„Það er mjög góð þátttaka og það er aukinn áhugi hjá sýnendum. Við gátum meira að segja ekki tekið alla sem vildu inn á það svæði sem við höfum fyrir þjóðarbásinn,“ segir Björgvin Þór Björgvinsson, fagstjóri sjávarútvegs og matvæla hjá Íslandsstofu, sem nú er í Barcelona á sjávarútvegssýningunni Seafood Expo Global.

Sýningin hófst fyrir hádegi í gær og henni lýkur á morgun, fimmtudag. Björgvin segir hana hafa verið afar vinsæla og að þær vinsældir séu síst að minnka. Fyrir utan íslensku fyrirtækin sem sýni í þjóðarbásnum séu mörg íslensk fyrirtæki á almenna svæðinu.
Björgvin segir sýninguna í Barcelona vera Sýninguna, með stóru essi. Um sé að ræða gömlu sýninguna sem hafi verið í Brussel í Belgíu árin 1994 til 2019 og sé hún haldin í fjórða sinn í Barcelona.
Allur bransinn mættur
„Hér er allur bransinn,“ segir Björgvin. „Það fóru tvær stútfullar Icelandairvélar á mánudagsmorguninn frá Íslandi. Ef þetta eru ekki sýnendur þá er þetta fólk í kring um iðnaðinn. Það geta verið bankarnir, tryggingafélögin, olíufélögin og koll af kolli. Það eru mjög margir í Barcelona í kring um þessa sýningardaga. Síðast en ekki síst er þetta vettvangur til þess að hittast og halda tryggð við sína viðskiptavini.“

Á sýningunni verða um sjö til átta hundruð manns frá Íslandi frá 160 til 170 fyrirtækjum. Þar eru sýningarhallir fyrir sjávarafurðir og síðan hálf höll fyrir sjávarútvegstækni- og lausnir. Björgvin segir svæðið sem Íslandsstofa haldi utan um vera samtals 840 fermetra.
Íslensku sýnendurnir munu hafa margt fram að færa að sögn Björgvins sem sérstaklega fagnar nýliðun í hópunum. „Við erum með að minnsta kosti tvö ný fyrirtæki hjá okkur, eitt sem er með eigin bás og annað sem er á sameiginlegu svæði Íslandsstofu. Það er gaman að það eru nýir aðilar að koma inn.“