Sjávarútvegsráðuneytið hefur breytt áður útgefinni makrílreglugerð þannig að bátum sem hafa leyfi til strandveiða verður heimilt að stunda makrílveiðar á handfæri og línu.
Veiðarnar eru háðar sérstöku leyfi og skulu takmarkast af þeim 3.000 tonnum af makríl sem ráðstafað var til línu- og handfæraveiða á yfirstandandi fiskveiði.
Í frétt frá ráðuneytinu segir að sérstök ástæða sé til að skapa svigrúm fyrir nýjar veiðiaðferðir, sem líklegar séu til að skapa grundvöll fyrir fjölbreyttri vinnslu á verðmætum afurðum og auka atvinnu í sjávarbyggðum. Ennfremur þyki eðlilegt, vegna þess hve stutt sé síðan farið var að veiða makríl hér í teljandi magni, að veita fleirum aðgang að veiðunum en þeim sem veitt hafa síðustu árin.
Makrílaflinn á vertíðinni er kominn í 45.000 tonn og segir ráðuneytið að ætla megi að 80% aflans hafi farið í manneldisvinnslu.
Sjá nánar á vef ráðuneytisins, HÉR