Síðustu þrír dagar hafa verið frekar rólegir hjá strandveiðibátunum. Brælur hafa hamlað sjósókn. Heildarþorskafli þeirra er nú rúm tvö þúsund tonn. Þar af hafa bátar á veiðisvæði A veitt rúman helming aflans. Á því svæði hafa alls 186 bátar landað afla og er meðalafli í róðri 614 kg.
Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda. Þar má kynna sér nánar stöðu veiðanna á einstökum svæðum. Sjá HÉR