Að loknum veiðum 7. júlí hafði helmingur veiðiheimilda mánaðarins verið nýttur á svæði A (Arnarstapi - Vestfirðir) og D (Hornafjörður - Snæfellsnes).  Fjórðungur var hins vegar búinn á svæði B (Horn - Eyjafjörður) og C (Grenivík - Djúpivogur).

Vakin er athygli á þessu á vef Landssambands smábátaeigenda.

Alls hafa 688 bátar hafið strandveiðar en 723 útgerðir hafa fengið strandveiðileyfi. Heildarafli er kominn yfir fjögur þúsund tonn og hafa bátarnir farið í alls 7.791 sjóferð.

Sjá nánar HÉR