Undanfarna 12 mánuði hefur verið nokkuð stöðugt verð á aflaheimildum. Verðið á aflamarki í þorski hefur verið í kringum 250 kr./kg en litlu lægra í krókaaflamarki. Í lok september tók verð að lækka lítillega og er í dag 215 kr í aflamarkskerfinu en hefur verið rúmlega 200 kr. í krókaflamarkskerfinu. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu.

Fiskistofa segir að af verðþróuninni að dæma megi ljóst vera að verðfallið sem varð á haustmánuðunum 2012, sem má rekja til aukins framboðs á þorski á erlendum mörkuðum, hafi ekki gengið til baka nema að litlu leyti en verðið í aflamarkskerfinu fór hæst í upphafi árs 2012 upp í 330 kr.

Sjá nánar á vef Fiskistofu