Stjórn HB Granda hf. hefur samþykkt samning um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Ögurvík ehf. sem gerður var 7. september síðastliðinn og hefur hún ákveðið að leggja hann fyrir hluthafafund í félaginu til samþykktar.
Kaupverðið er 12.3 milljarðar króna en það byggir á niðurstöðum tveggja óháðra matsmanna. Þá vinnur Deloitte á Íslandi skýrslu um kaupin samkvæmt lögum um viðskipti tengdra aðila og verður hún kynnt hluthöfum með fundarboði. Viðskiptin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupin verða fjármögnuð með eigin fé og lánsfjármagni. Hlutabréfin verða afhent við greiðslu kaupverðs.
Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu HB Granda. Þar segir jafnframt:
Ögurvík ehf. er útgerðarfélag sem gerir út Vigra RE 71 sem er 2.157 tonna frystitogari smíðaður árið 1992. Aflaheimildir félagsins á fiskveiðiárinu sem hófst 1. september 2018 eru 7.680 tonn af botnfiski og 1.663 tonn af makríl miðað við úthlutun árið 2018. Ögurvík hefur rekið útgerð frá Reykjavík í meira en hálfa öld, en Vigri RE er eitt kvótahæsta fiskiskip íslenska flotans. Rekstrartekjur félagsins á árinu 2017 voru 2.197 milljónir króna , 2.160 milljónir kr. árið 2016 og 2.193 milljónir kr. árið 2015. EBITDA félagsins var 348 milljónir króna árið 2017, 366 milljónir kr. árið 2016 og 707 milljónir kr. árið 2015.
„Með kaupunum á Ögurvík breikkar grunnur allrar starfsemi HB Granda. Fiskveiðikvóti félagsins eykst, einkum í verðmætum tegundum eins og þorski en botnfiskkvótinn fer úr 48 þúsund tonnum í 56 þúsund tonn. Tækifæri skapast á aukinni sérhæfingu í veiðum og í landvinnslu. Vinnsla á verðmætari afurðum í landi mun aukast. Þá verður nýting á hráefni og vinnsla á öðrum afurðum hagfelldari og staða félagsins á mörkuðum styrkist með aukinni framleiðslu ekki hvað síst í Asíu þar sem eftirspurn eykst stöðugt. Verð á afurðum félagsins getur því hækkað og arðsemin af aflaheimildum og fjárfestingum í vinnslu eykst af sama skapi. Kaupin á Ögurvík eru í samræmi við áherslur félagins á veiðar og vinnslu tegunda með hærri framlegð og að sækja á arðbæra og vaxandi markaði,“ segir í fréttinni.
Þá hefur Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Brims hf, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri HB Granda. Brim er stærsti hluthafi HB Granda og á ríflega þriðjungshlut.
Ægir Páll mun hafa umsjón með botnfisk-, uppsjávar-, markaðs- og mannauðssvið félagsins og starfa undir Guðmundi Kristjánssyni, forstjóra HB Granda. Samhliða ráðningunni var nýtt skipurit félagsins kynnt.