Stígandi VE hefur verið seldur til Suðurnesja. Kaupandi er Marbrá ehf. sem eru í eigu Bergs Þórs Eggertssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Nesfisks í Garði. Frá þessu er skýrt á vefnum aflafrettir.is . Báturinn mun fá nafnið Marberg og einkennisstafina GK 717.
Haft er eftir nýja eigandanum að ekki sé fullráðið hvernig báturinn verði nýttur en honum fylgja nokkur veiðarfæri og er hann sagður svo til klár til veiða.