,, Það er léttir að þegar sé komin tillaga um byrjunarkvóta, þó lítill sé. Þá eru niðurstöðurnar varðandi ungloðnuna það jákvæðasta sem hefur komið út úr loðnurannsóknum mjög lengi og er það vissulega fagnaðarefni,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda á vef fyrirtækisins .

Á síðustu vertíð var kvóti skipa HB Granda hf. 20.505 tonn. Hlutur félagsins af  200.000 þúsund tonna tillögunni nú verður væntanlega um 27.000 tonn, að því gefnu að sjávarútvegsráðherra fari að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.  Hafa ber í huga að Íslendingar deila loðnukvótanum með Norðmönnum, Færeyingum og Grænlendingum en hluti þessara þjóða í heildarkvótanum er um 28%.

,,Við reiknum með að veiða eitthvað af loðnu í desember og vonum að mæling Hafrannsóknarstofnunar í janúar muni gefa tilefni til viðbótarkvóta,“ segir Vilhjálmur en hann bendir á að þótt niðurstöður umræddra mælinga séu vissulega uppörvandi þá sé aflamagnið, sem Hafrannsóknastofnun leggur til nú, aðeins brot af því sem veitt var á sínum tíma.

,,Þess má geta að fyrstu vertíðina eftir að HB Grandi hf. varð til í sinni núverandi mynd eftir kaup á HB og samruna við Tanga og Svan RE ehf. fyrir rúmlega fimm árum var loðnukvóti félagsins 144 þúsund tonn,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson.