Skuttogarinn Stefnir ÍS 28 hefur verið seldur til Grænhöfðaeyja og lýkur þar með nær hálfrar aldar vestfirskri útgerð skipsins. Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri HG, staðfestir það við vefmiðilinn Bæjarins besta.
Fulltrúar kaupenda eru komnir til Ísafjarðar og vinna við að gera skipið klárt fyrir brottför.
Togarinn hét áður Gyllir ÍS 261 og var smíðaður í Flekkefjord í Noregi fyrir Útgerðarfélag Flateyrar hf. og kom til Flateyrar 16. mars 1976. Árið 1993 komst skipið í eigu Íshúsfélags Ísfirðinga hf, sem sameinaðist árið 2000 Hraðfrystihúsinu-Gunnvör hf.