Starfshópur sem sjávarútvegsráðherra skipaði tekur undir tillögur Hafrannsóknastofnunar um að bann verði lagt við beinni sókn í lúðu, en veltir einnig upp öðrum möguleikum til að takmarka sókn í stofninn.
Starfshópurinn var skipaður starfsmönnum ráðuneytisins, Fiskistofu og Hafrannsóknarstofnunarinnar.
Í greinargerð starfshópsins kemur fram að ástand lúðustofnsins hér við land sé mjög bágborið. Þá eru rannsóknir á stofninum ófullnægjandi. Engin aflamarksstýring er á lúðuveiðum en meirihluti lúðuafla berst sem meðafli. Auk þess eru stundaðar beinar línuveiðar á lúðu með svokallaðri haukalóð og hefur sú veiði farið vaxandi á undanförnum árum.
Engar ákvarðanir liggja enn fyrir í þessu efni og er málið nú í höndum ráðherra.