Í gær hófst vinnsla í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði að lokinni rúmlega mánaðar sumarlokun.

Róbert Ingi Tómasson framleiðslustjóri segir á vefsíðu Síldarvinnslunnar að fólk hafi mætt hresst og kátt til starfa.

„Það er ekki alveg fullmannað hjá okkur strax og það tekur ávallt einhvern tíma að snúa öllu í gang. Við byrjum á að vinna ufsa, sem kom úr Bergi VE, og síðan þorsk, sem Gullver NS kom með. Þetta lítur allt ljómandi vel út,“ segir Róbert á svn.is.

Þá segir frá því að Gullver landaði 86 tonnum á Seyðisfirði í gær eftir fjóra daga á veiðum. „Um helmingur aflans er þorskur en síðan er þetta, karfi, ýsa og ufsi. Það aflaðist alveg sæmilega. Við vorum að veiða á okkar hefðbundnu slóðum, á Fætinum, Hvalbakshalli, Berufjarðarál, Papagrunni og Lónsbugt. Það verður haldið á ný til veiða í kvöld,“ segir Steinþór Hálfdanarson skipstjóri á Gullveri við tíðindamannvefsíðu Síldarvinnslunnar.