Útgerðarfyrirtækið Stálskip sem gerir út frystitogarann Þór HF greiddi hæst meðallaun allra fyrirtækja á landinu á síðasta ári, sem tóku þátt í könnun Frjálsrar verslunar.
Meðalárslaun hjá Stálskipum voru um 23 milljónir króna á árinu 2012 sem jafngildir rúmum 1,9 milljónum króna á mánuði. Eskja, sem gerir út uppsjávarskipin Aðalstein Jónsson SU og Jón Kjartansson SU, greiddi næsthæstu meðallaunin, eða 21,4 milljónir fyrir ársverkið. Meðallaun hjá Brimi hf. voru 19,3 milljónir í fyrra og er fyrirtækið í þriðja sætið á listanum yfir þau fyrirtæki á landinu öllu sem greiða hæstu meðallaun. Bergur-Huginn er svo í fjórða sæti með um 16 milljarða meðallaun.
Í nýjustu Fiskifréttum er birt tafla um 23 sjávarútvegsfyrirtæki í könnun Frjálsrar verslunar sem greiddu hæstu meðallaunin 2012.