HB Grandi leggur fram 140 milljónir króna sem hlutafjárframlag í byggingu nýrrar verksmiðju sem mun framleiða kollagen úr þorskroði. Með þessu mun HB Grandi standa við viljayfirlýsingu sem send var 19. janúar á þessu ári.

Verksmiðjan verður samstarfsverkefni HB Granda, Samherja, Vísis og Þorbjörn í Grindavík sem munu eiga jafnan hlut í félaginu  ásamt spænska félaginu Junca Gelatines.

Íslensku félögin munu eignast jafnan hlut alls tæp 90%. Hlutafjárframlag HB Granda verður um 140 milljónir króna.