Óháð vottunarnefnd á vegum írsku vottunarstofunnar Global Trust/SAI Global hefur endurvottað veiðar á þorski ( Gadus morhua ) á Íslandsmiðum samkvæmt íslensku kröfulýsingunni um ábyrgar fiskveiðar (Icelandic Responsible Fisheries Management Specification). Vottunin staðfestir að veiðunum er stjórnað á ábyrgan hátt í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar kröfur og ber vitni um framþróun í íslenskum fiskveiðum.
Kröfulýsingin sem vottað er eftir er staðall sem byggir efnislega á samþykktum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). Óháð mat vottunarstofunnar var unnið eftir ISO65 faggiltu kerfi Global Trust og veitir trúverðuga vottun þriðja aðila á ábyrgri fiskveiðistjórnun.
Úttektin fól í sér yfirgripsmikla skoðun á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu, þar á meðal stjórnunarreglum, aflamarkskerfinu og mati á stærð stofnsins. Niðurstaða úr mati vottunarnefndar var að stjórnkerfið og aflareglan fælu í sér varúðarnálgun sem stuðlar að ábyrgum veiðum og góðri umgengni um vistkerfið.
Þorskafurðir skapa 32% útflutningsverðmætis sjávarafurða. Aflamark í þorski á yfirstandandi fiskveiðiári er 216.000 tonn og er ástand þorskstofnsins gott eins og fram kemur í árlegri ástandsskýrslu Hafrannsóknastofnunar.
Sjá nánar HÉR