Indriði Kristins BA, nýr beitningavélabátur Þórsbergs ehf. á Tálknafirði, var að koma inn til sinnar þriðju löndunar í byrjun vikunnar þegar Fiskifréttir náðu tali af Guðjóni Indriðasyni útgerðarmanni. Nýi báturinn er 12,5 metrar á lengd, 6,5 á breidd og mælist 30 brúttótonn. Hann er smíðaður hjá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði og leysir af hólmi eldri bát með sama nafni.
Báturinn er yfirbyggður Cleopatra 40BB hannaður í samstarfi við Ráðgarð ehf . Rými er fyrir allt að 54 460 lítra kör í lest. Millidekk er lokað með aðgreindu dráttarrými. Í bátnum er upphituð stakkageymsla fyrir átta manns. Í bátnum er stór borðsalur, salerni og sturta, þvottavél og þurrkari. Svefnpláss er fyrir átta í lúkar í 4 aðskildum klefum. Fullbúið eldhús er um borð með öllum nauðsynlegum búnaði eins og t.d. eldavél, bakarofni, örbylgjuofn og ísskáp. Báturinn er útbúinn til lengri útiveru ef þarf og aðbúnaður um borð fyrir áhöfn í takt við það.
Fer vel af stað
Guðjón segir þetta fara vel af stað á nýja bátnum og þeir sem rói honum beri honum góða sögu. Þar vísar Guðjón til sona sinna, skipstjóranna Indriða og Magnúsar.
„Þetta er nú ekki fyrsti báturinn sem ég fæ frá Trefjum. Þeir eru orðnir nokkrir og þessi líklega sá ellefti eða tólfti í röðinni. En það er yfir mörg ár. Ég lét smíða fyrir mig bát í Bátalóni 1972 og ég hef ekki unnið við annað síðan. Ég fór sjálfur í land fyrir mörgum árum, líklega í kringum 1986 og stýri þessu bara úr landi núna,“ segir Guðjón.
Hann sagði að mesta pælingin í kringum nýja bátinn hafi verið að lækka kolefnisfótsporið. Hann er með minni vél en fyrri bátur og stærri skrúfu. Þessu fylgi minni olíueyðsla og minni útblástur. Í samanburði við eldri bát fari eyðslan niður um 15-20% en á sama tíma er heldur meiri gangur í þessum bát. Guðjón segir að keypt hafi verið olía á síðasta kvótaári fyrir nálægt um 20 milljónir króna. Olíusparnaðurinn á ársgrundvelli geti því numið 3-4 milljónum króna.
Þetta hafi verið stóra málið en að auki er öll aðstaða um borð mun betri en í eldri bát, bæði fyrir áhöfn og einnig öll vinnuaðstaða. Tvær áhafnir eru á Indriða Kristins, alls átta manns. Úthöldin eru tíu dagar í senn.
Komnir upp í hámark
„Við vorum með nægan kvóta fyrir allt árið en niðurskurðinn sem var framkvæmdur núna og síðast skekkir myndina talsvert. Hann tekur af okkur einn og hálfan mánuð. Við vorum með nægan kvóta fram að því. Við erum ekki búnir að finna lausn á því en erum að skoða málið. Við megum ekki vera með meiri kvóta út af þakinu í krókaaflamarkskerfinu sem er 4%. En í stóra kerfinu geta fyrirtæki verið með allt að 12%“
Guðjón segir veiðar hafa gengið ágætlega undanfarið. Það virðist vera nóg af fisk í sjónum. „Þeir lönduðu í tvígang í Ólafsvík og núna hérna fyrir vestan. Það fer bara eftir því hvernig veiðin er hvar þeir verða. Þeir rúnta bara í kringum landið og hafa verið mikið fyrir austan á haustin og eru svo komnir hingað vestur upp úr desember. Um miðjan mars, þegar steinbíturinn fer að þvælast fyrir, hafa þeir farið suður. Þetta er ekki smíðað til að vera við bryggju.“
Þórsberg rak einnig saltfiskvinnslu og aðra vinnslu fram til ársins 2015. Nú fer aflinn að hluta til á markað og einnig er Þórsberg í föstum viðskiptum við Kamb í Hafnarfirði. Guðjón segir fiskverð í hæstu hæðum og hann muni ekki eftir öðru eins.
„En nú er hann að koma að bryggju og ég má ekki vera að þessu,“ kveður Guðjón, „hann er með einhver 12-14 tonn, mest þorski.“
TÆKNILÝSING:
Vélbúnaður frá Ásafl ehf
Aðalvél. Doosan 4V158TIH (15 lítra)
Gír: ZF W350-1
Skrúfubúnaður
Skrúfuhnífur
Helac snúningsliður
Dælubúnaður
Stýrisbúnaður
Stýrismíði Héðinn
Stýrisbúnaður Trefjar
Öryggisbúnaður
Viking björgunarbúnaður
Sjálfvirkur sleppibúnaður: KN vélsmiðja
Siglingatæki:
Frá Sónar ehf:
ComNav P4 Color sjálfstýring m. hliðarskrúfu interface
TS-203 FFU útistýri fyrir Compilot
Comnav Stýrisvísir
JRC JFC-180 BB dýptarm, 3KW, 4 freq
Raymarine CAM220 IP myndav, eyeball, 93°
JRC JHS-183 AIS tæki með loftneti
JRC JLR-21 GPS kompás, m skjá, 3ja loftn
SAILOR 6215 VHF DSC talstöð
SAILOR 6210 VHF talstöð
AG Neovo QX-43 43" 4K, Quad skjár
JRC JLN652 Doppler Current Meter, 240kHz
SAILOR 6150 Mini-C, með neyðarhnapp
Thrane LT-3100S Iridium GMDSS System
JRC NCR-333 Navtex Móttakari m. activu loftneti
Phontech CIS 3100 Master Station 5 rása
Phontech 9001 útstöð m. mic + hátalara
Phontech 9052 vatnsh útstöð m mic + hát.
GILL WindObserver 65 vindhr.nemi m. hita
Tranberg TEF2650 LED51 leitarkastari
Tranberg TEF2612 Control Panel f TEF2650
Raymarine Quantum 2 Q24D radar m 10m kap
Raymarine AXIOM 12 Pro-RVX, 1KW + 3D
Maxsea Timezero Professional V4
Pacific MS-3C Skjáveggscontrol 20x16
Olex 3D forrit og tölva
3G/4G sími með innbyggðum router
3G/4G Data Router, RUT240
Siemens PRO þráðlaus sími m. bluetooth
Koden KGP-915 GPS/Glonass og display
Sónar ehf hafði yfirumsjón með tækjauppsetningu um borð
Veiði og dekkútbúnaður
Línuspil, uppstokkari, beitningavél og rekkar: Mustad
Blóðgunar og kælisnigill: Lavango
Móttöku og meðaflakör: Stálorka
Beitukar: Stálorka
Vökvakerfi: Danfoss
Beiturekkar: Stálorka
Ísvél og forkælir: Kæling ehf
Rekkverk og önnur járnsmíði: Stálorka
Löndunarkrani: TMP700L frá Ásafli
Bóg og skutskrúfa er af gerðinni Quick.