Nýtt snjóbræðslukerfi við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli mun bæta öryggi þegar hálka er og frost.
Þetta kemur fram færslu á vef Landhelgisgæslunnar:
„Þau sem hafa ekið framhjá flugskýli Landhelgisgæslunnar í vikunni hafa eflaust tekið eftir fjölmörgum vinnuvélum og starfsfólki sem vinnur nú í kappi við tímann að koma nýrri snjóbræðslu fyrir á flughlaðinu.
Um mikið öryggisatriði er að ræða, sérstaklega ef ræsa þarf þyrlur Landhelgisgæslunnar við flugskýlin í frosti og hálku. Snjóbræðslan sem fyrir var á planinu hefur að undanförnu verið óvirk og því þurfti að koma nýrri snjóbræðslu fyrir.
Allt kapp er lagt á að klára verkið fyrir vikulok og þeir sem að verkinu standa vinna baki brotnu fram á kvöld til að aðstaða þyrlusveitarinnar verði komin í samt horf sem fyrst.
Á meðan framkvæmdunum stendur er eldra flugskýli Landhelgisgæslunnar, sem alla jafna er notað fyrir viðhald, nýtt fyrir þær þyrlur sem eru tilbúnar í útkall og þyrlunum ýtt út vestan megin við skýlið,“ segir á vef Landhelgisgæslunnar.