Í byrjun þessara vikur skrifuðu formaður og framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar undir samning við finnsku skipasmíðastöðina Kewatec um smíði björgunarskipa númer sjö og átta í endurnýjunarferli allra þrettán björgunarskipa félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þar segir að skipin verði afhent á næsta ári. Áætlað sé að þau fari á Vopnafjörð og Patreksfjörð og að annað skipið verði afhent fyrri hluta sumars og hitt að hausti.
„Þá verður búið að endurnýja 60% björgunarskipa félagsins frá því að fyrsta skipið var afhent haustið 2022 í Vestmannaeyjum,“ segir í tilkynningunni. „Fjögur skip eru komin í notkun og fimmta skipið er væntanlegt til landsins með Eimskip og verður staðsett á Höfn í Hornafirði. Sjötta skipið er langt komið í smíðum og verður afhent í haust og verður staðsett á Ísafirði.“
Gengið vonum framar
„Óhætt er að segja að endurnýjunarverkefnið hefur gengið vonum framar til þessa og nú er framundan lokahnykkurinn. Það er von félaga Slysavarnafélagsins Landsbjargar að landsmenn leggist á árarnar með okkur til að ljúka verkefninu með sóma. Árið 2028 verða liðin 100 ár frá stofnun félagsins og í nærri heila öld hefur félagið lagt mikla áherslu á öryggismál sjófarenda. Það væri afar ánægjulegt að ljúka endurnýjun björgunarskipa félagsins á aldarafmælinu,“ segir í tilkynningu Slysavarnafélagsins Landsbjargar.