Samkvæmt stöðumynd Fiskistofu í gær var búið að skrá alls 755 tonn af færaveiddum markríl, að því er fram kemur á vef Landssambands smábátaeigenda. Á bakvið aflann voru 67 bátar og því ljóst að ekki eru allir farnir af stað, þar sem gera má ráð fyrir að heildarfjöldi verði talsvert á annað hundraðið.
Helsta veiðisvæðið í fyrra var á Steingrímsfirði og bíða menn á Hólmavík og Drangsnesi nú eftir að hann gefi sig og vona að sama veislan og í fyrra endurtaki sig.Ólafur HF hefur landað mestum afla eða 50 tonnum.