Slippurinn Akureyri er með umboð fyrir Deep Trekker, kanadíska neðansjávar­dróna – eða fjarstýrða kafbáta. Slippurinn hefur kynnt búnaðinn á vörusýningum undanfarin ár og hann fengið góðar viðtökur. Nokkrir aðilar hafa þegar fjárfest í þessum lausnum og hefur notagildið sannað sig með glæsilegum árangri, að sögn Valdemars Karls Kristinssonar, verkefnisstjóra hjá Slippnum Akureyri.

Valdemar segir að Deep Trekker stuðli að auknu öryggi og hagkvæmni í rekstri fiskeldisfyrirtækja.

„Með Deep Trekker kafbátum færðu fullkomið yfirlit yfir ástand neta og festinga án þess að þurfa að senda kafara niður. Þú sérð strax hvað þarf að laga eða viðhalda, sem sparar bæði tíma og kostnað og eykur öryggi.“

Net Patch Kit – einfaldar viðgerðir undir vatni

Eitt af þeim verkfærum sem eykur þetta öryggi og skilvirkni er Net Patch Kit. Það festist ofan og neðan á Deep Trekker kafbát og heldur netbótinni með örmum framan við bátinn. Mótorinn að neðan tengist við gripbúnaðinn, og með stýringu á neðri arminum er hægt að minnka spennu í netinu til að staðsetja möskvann rétt og síðan losa til að skilja bótina eftir á sínum stað. Slippurinn Akureyri sér um að útvega festingar og uppsetningarbúnað, en viðskiptavinurinn útvegar sjálfur netið svo hægt sé að samræma efnið við það sem þegar er notað í kví fyrirtækisins.

Nákvæm skoðun, hreinsun og vöktun

Með kafbát frá Deep Trekker er hægt að framkvæma reglulegar og nákvæmar skoðanir á netum og tryggja að festingar séu öruggar og þar með tryggja burðarþol og öryggi mannvirkja. Þetta er sérstaklega mikilvægt við uppsetningu nýrra kvía og til að uppfylla kröfur eftirlitsaðila.
Með kafbát geturðu tekið stjórn á netaskoðunum, aukið skilvirkni í hreinsun og fylgst með slit- eða skemmdarhættu sem gæti leitt til fiskflótta. Reglulegar skoðanir á kvíum og netum, ásamt vöktun á fiskiheilbrigði og fóðrun, ættu að vera hluti af daglegum rekstri.
Með lausnum Deep Trekker er hægt að fá rauntímamynd frá neðansjávarmyndavélum, fylgjast með fóðrun, meta ástand stofnsins og greina hegðun fisksins. Þetta sparar bæði tíma og fjármuni.

Á heimasíðu Slippsins Akureyri eru myndbönd sem sýna virkni búnaðarins.