Þó að víða sé veiðivon fyrir loðnuflotann er veðurspáin slæm og ekki bjart útlit fyrir veiðarnar næstu dagana af þeim sökum, segir á vef Síldarvinnslunnar.

Loðnuveiðarnar hafa gengið misjafnlega síðustu daga. Ágæt veiði var sl. föstudag en um helgina gekk ver. Þá var kaldafýla á miðunum og lítið fékkst við Reykjanes og í Faxaflóa. Á sunnudagskvöld fannst loðna út af Þjórsárósum og á mánudag var flotinn kominn austur fyrir Eyjar en afli var misjafn. Í gær brast síðan á með hörkuveiði vestur af Vestmannaeyjum og eru öll Síldarvinnsluskipin á landleið með fullfermi eða nánast fullfermi.

Frést hefur af loðnu allvíða og fékk Polar Amaroq til dæmis 700 tonn í tveimur köstum á Faxaflóa í gær en var komin austur í morgun á þau mið sem best fiskaðist á í gær. Þá voru bátar að kasta í Meðallandsbugt í gær og fregnir af vísbendingum um loðnu út af Vestfjörðum hafa borist, segir á vef SVN.