Norski fóðurframleiðandinn Skretting Norway skoðar nú möguleikann á því að koma upp fóðurverksmiðju á Íslandi fyrir laxeldi.
Þetta kemur fram í Intrafish þar sem haft er eftir Haarvard Walde, forstjóra Skretting Norway, að Ísland hafi til langs tíma möguleikann á því að verða þriðji stærsti laxaframleiðandi í heimi.
„Þetta mun taka tíma en möguleikarnir eru klárlega til staðar. Ef það er einhver staður í heiminum með mjög sterka kosti fyrir góða starfsemi þá er það Ísland,“ segir Walde við Intrafish.
Fylgjast náið með Íslandi
Að sögn Walde fylgist Skretting náið með mikilli uppbyggingu landeldis á Íslandi. Þessi norski fóðurframleiðslrisi hafa þegar komið sér upp vöruhúsi í Þorlákshöfn þar sem landeldisfyrirtæki eru nú að koma sér fyrir. Um það vil vikulega sé flutt inn fóður til landsins. Ætlunin sé sú að þegar eldisframleiðslan hér hafi náð nægu magni að skoða möguleikann á því að reisa fóðurverksmiðju hérlendis.
Rakið er í Intrafish að framleiðsla í laxeldi hérlendis hafi um það bil þrefaldast á fimm árum fram til ársins 2022. Ísland hafi þó enn aðeins verið í áttunda sæti yfir stærstu framleiðendur í heiminum á árinu 2021. Efst á listanum eru Noregur, Síle og Bretland.
Eigandinn er hluthafi í Laxey
Walde segir möguleika Íslands til aukinna umsvifa í landeldi á laxi felast í aðgangi að ferskvatni og orku.
Þess má geta að Skretting er í eigu hollenska fyrirtækisins Nutreco sem er einn hluthafa í landeldisfyrirtækinu Laxey í Vestmannaeyjum og stærsti framleiðandi í heimi á fiskafóðri. Í Vestmannaeyjum telja menn að Skretting muni líta þangað með staðsetningu á mögulegri fóðurverksmiðju enda séu bæði Vinnslustöðin og Ísfélagið þar með sína útgerð og fiskimjöl sé stór þáttur í framleiðslu fiskifóðurs.