Alþjóðlega leitar- og björgunaræfingin Arctic Guardian 2017 hófst í gær en samtök strandgæslustofnana norðurslóðaríkjanna átta ( Arctic Coast Guard Forum ) standa fyrir æfingunni og er hún sú fyrsta sem haldin er undir merkjum þeirra. Í gærmorgun komu þátttakendur í æfingunni saman til undirbúningsráðstefnu um borð í danska varðskipinu Vædderen í Reykjavíkurhöfn.

Frá þessu segir á heimasíðu Landhelgisgæslunnar.

Síðdegis í gær notuðu margir þeirra svo tækifærið og skoðuðu hin skipin sem notuð verða á æfingunni: norska skipið Andenes, bandaríska Spencer, kanadíska ísbrjótinn Pierre Radisson og síðast en ekki síst varðskipið Þór. Á sjöunda tímanum lögðu svo skipin af stað að æfingasvæðinu vestur af landinu og var tilkomumikið að fylgjast með þeim sigla eitt af öðru úr höfninni, segir í fréttinni.

Í morgun hófst æfingin svo fyrir alvöru þegar skipin, flugvélar og þyrlur þátttökustofnananna hófu leit af björgunarbátum sem varpað var út úr flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, í gær. Með þessu er líkt eftir því ef stórt farþegaskip lenti í sjávarháska á Norður-Atlantshafi. Aðgerðunum er stýrt úr sérstakri stjórnstöð í Skógarhlíð 14 þar sem höfuðstöðvar Landhelgisgæslunnar eru.