Veiðar á skipum Síldarvinnslunnar eru að hefjast á nýbyrjuðu ári.

Frá þessu er greint á vef fyrirtækisins í gær. Þar segir að Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergur VE hafi haldið til veiða í fyrrinótt. Bergur hafi hafið veiðar á Pétursey og Vík en Vestmannaey þá verið á leiðinni á Höfðann. Bergur hafi farið í stutta veiðiferð á milli jóla og nýárs og landað að henni lokinni daginn fyrir gamlársdag.

Uppsjávarskipin á leið í færeysku lögsöguna

„Frystitogarinn Blængur NK lætur úr höfn í nótt og mun sennilega hefja veiðar á austurmiðum. Mun þetta væntanlega verða 40 daga túr hjá Blængi. Gullver NS mun halda til veiða á morgun frá Seyðisfirði. Uppsjávarskipin Barði NK, Beitir NK og Börkur NK halda til kolmunnaveiða í færeyskri lögsögu í nótt. Áhafnir uppsjávarskipanna munu án efa fylgjast grannt með loðnuleit sem væntanlega hefst fyrir eða um miðjan janúarmánuð,“ sagði á svn.is í gær.