Møgster Havfiske í Noregi hefur selt nótaskipið Møgsterfjord ásamt kvótum fyrir 440 milljónir NOK, sem er um 8,4 milljarðar íslenskra króna. Þetta er hæsta verð sem fengist hefur fyrir skip og kvóta í Noregi, að því er fram kemur í FiskeribladetFiskaren.
Kaupandinn er Olav Østervold hjá Østerbris A/S. Þetta er í fyrsta sinn sem eitt af stóru útgerðarfyrirtækjunum í Noregi selja frá sér skip og kvóta. Møgster Havfiske er frekar þekkt fyrir það að kaupa skip og kvóta.
Møgsterfjord fiskaði fyrir um 65-70 milljónir NOK (1,3 milljarðar ISK) í ár sem er 10 milljónum meira en í fyrra. Í heild var afli þess 16.400 tonn af uppsjávarfiski, þar af 6.600 tonn af norsk-íslenskri síld og 3.100 tonn af makríl.