Í gærmorgun voru skip HB Granda, auk tveggja skipa sem fengin hafa verið til að veiða af loðnukvóta félagsins, búin að veiða alls um 51.000 tonn af loðnu á vertíðinni en það samsvarar helmingi úthlutaðs kvóta upp á 102.000 tonn. Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarveiðisviðs HB Granda, segist í samtali á vef fyrirtækisin s reyndar eiga von á því að bætt verði við kvótann síðar þar sem sýnt þyki að Grænlendingar nái ekki að nýta veiðiheimildir sínar að fullu nú á vertíðinni.
Að sögn Vilhjálms eru skipin nú að veiðum með grunnnætur skammt undan Jökulsárlóni en það hefur verið mjög góð veiði eftir að loðnan gekk upp á grunnið og þegar viðrað hefur til veiða. Loðnan er stór og góð en töluverð áta er í henni og því hefur ekkert verið fryst af loðnu í uppsjávarfrystihúsinu á Vopnafirði frá því í miðri síðustu viku. Nú er um 165 sjómílna sigling frá miðunum til Vopnafjarðar en til Akraness, þar sem fiskmjölsverksmiðjan er nú keyrð á fullum afköstum, er um 250 sjómílna sigling.
Slæmt veður nú í lok síðasta árs og byrjun þessa hefur valdið því að töluvert hefur verið um frátafir frá veiðum og því hefur gengið hægar á úthlutaðan kvóta en ella hefði verið. Vilhjálmur segir að til þess að tryggja fulla nýtingu á vinnslugetunni á Vopnafirði og Akranesi hafi verið brugðið á það ráð í síðustu viku að fá Huginn VE og Hoffell SU til þess að taka sitt hvorn túrinn til veiða af kvóta HB Granda. Bæði skip lönduðu afla í síðustu viku, Huginn um 1.700 tonnum á Akranesi og Hoffell 1.220 tonnum á Vopnafirði.