Byggðarráð Skagafjarðar hefur skorað á Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra að hraða vinnu nýskipaðs starfshóps sem á að leiða samtal við hagaðila um möguleika strandsiglinga og gera tillögur til úrbóta.

Eyjólfur Ármannsson.
Eyjólfur Ármannsson.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

„Ljóst er að breytingar eru í farvatninu þar sem Eimskip hefur boðað að félagið hyggist leggja af strandsiglingar til hafna á Vestfjörðum og Norðurlandi, í kjölfar stöðvunar starfsemi kísilverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík. Töluvert tekjutap verður hjá Skagafjarðarhöfnum við breytinguna en einnig má ljóst vera að þar sem hún þýðir að um 11.500 tonn af varningi fara þá landleiðina til og frá Skagafirði, verður tilheyrandi enn aukið slit og álag á þegar óburðugt og vanfjármagnað þjóðvegakerfi landsins,“ segir í bókun byggðarráðsins.

„Það er mikið hagsmunamál fyrir fyrirtæki og íbúa á landsbyggðinni að vöruflutningar séu sem hagkvæmastir og hafi um leið sem minnst neikvæð umhverfisáhrif,“ undirstrikar byggðarráð Skagafjarðar.