Sjótækni ehf. og laxeldisfyrirtækið Arctic Fish ehf. hafa gert langtímasamning um áframhaldandi þjónustu Sjótækni við fiskeldi Arctic Fish á Vestfjörðum. Samningurinn er til fjögurra ára með framlengingarákvæðum að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

„Sjótækni mun veita Arctic Fish þjónustu er snýr að þrifum á eldisbúnaði, köfun og reglubundnum skoðunum. Jafnframt er hefur Arctic Fish aðgang að vinnubátum Sjótækni í ýmis verkefni og þá mun Sjótækni hafa til staðar viðbragðsteymi kafara sem hægt er að kalla út með skömmum fyrirvara,“ segir í fréttatilkynningunni þar sem haft er eftir John Gunnar Grindskar, framkvæmdastjóri-a eldis hjá Arctic Fish, að það sé ánægjulegt fyrir félagið að geta keypt þessa þjónustu í heimabyggð.

Samkeppnishæf þjónusta skipti miklu máli

„Við viljum taka þátt í því að byggja upp öfluga og metnaðarfulla þjónustuaðila í nærsamfélaginu. Með því verður til nauðsynleg þekking á svæðinu til að þjónusta eldið okkar og annarra á framúrskarandi hátt með öryggi starfsmanna og góðri umgengni um búnað og fiskinn okkar að leiðarljósi. Sjótækni hefur sýnt metnað í að fjárfesta í búnaði til að þjónusta okkur og í fyrirtækinu er að finna mikla þekkingu á þörfum okkar þegar kemur að smitvörnum sem og þjónustunni sem félagið veitir. Auk þess eru gæði þjónustunnar orðin samkeppnishæf við það sem best gerist, það skiptir miklu máli,“ er haft eftir John Gunnari.

Segir samninginn styrkja Sjótækni til vaxtar

„Við erum stolt af því að gera langtímasamning við Arctic Fish. Það er metnaður okkar í Sjótækni að vaxa með þeim fyrirtækjum sem starfa í greininni,“ er síðan haft eftir Kjartani J. Haukssyni, framkvæmdastjóri og öðrum eiganda Sjótækni.

„Við höfum til fjölda ára veitt fyrirtækinu ýmsa þjónustu og það er gott að finna fyrir ánægju og trausti með þjónustu okkar. Samhliða þessum samningi munum við fjárfesta í vinnubát með öflugum tækjabúnaði sem mun sjá um þvott á búnaði og skoðun. Þá mun þessi samningur styrkja félagið til frekari vaxtar og framþróunar á Íslandi,“ er einnig haft eftir Kjartani.

Þá kemur fram að Sjótækni gerir út báta, vinnuskip, pramma og þjónustubíla og hefur yfir að ráða mikið af sérhæfðum tækjum og búnaði fyrir fiskeldið. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Tálknafirði og útibú á Ísafirði og í Reykjavík. Hjá því starfa yfir fjörutíu manns.