Í dag þriðjudaginn 19. apríl, voru tveir íslenskir togarar, Breki VE og Páll Pálsson ÍS, sjósettir í Huanghai skipasmíðastöðinni í Rongcheng í Kína. Sjósetning beggja skipanna gekk að óskum.
Viðstaddir sjósetningarnar voru fulltrúar frá Vinnslustöðinni, Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru og Skipasýn, auk þeirra eftirlitsmanna sem eru við smíðina.
Frá þessu er skýrt á vef Vinnslustöðvarinnar.