,,Ríkisstjórn Íslands er búin að setja í sjávarútveginn í uppnám, sjómenn eru sárir, reiðir og finnst sem þeir séu sviknir. Að svíkja fólk er ávísun á það að það fólk sem svikið er svari fyrir sig,” segir í frétt af fjölmennum samstarfsfundi Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi og Sjómannafélagsins Jötuns, sem haldinn var 30 des. í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum.

Hátt í 100 manns mættu og var mikill hiti í mönnum. Frummælendur voru Bergur Kristinsson formaður Verðandi og Valmundur Valmundsson formaður Jötuns.

Í frétt af fundinum segir: ,,Sjómenn eru reiðir stjórnvöldum og krafa fundarmanna var að öll sjómannafélög landsins og útvegsmenn sneru bökum saman gegn þeim sem vilja afnám sjómannaafsláttarins, 5% álags á útfluttan ferskfisk og svo menn tali ekki um fyrningarbullið.  Ríkisstjórn Íslands er búin að setja í sjávarútveginn í uppnám, sjómenn eru sárir, reiðir og finnst sem þeir séu sviknir. Að svíkja fólk er ávísun á það að það fólk sem svikið er svari fyrir sig. Fundarmenn voru sammála um það að tugir milljarðar hefðu tapast fyrir íslenska þjóð vegna fávísí ríkisstjórnar Íslands á sjávarútvegsmálum.”